Síðasta vika 8 - 16 september var svo sannarlega viðburðarík og skemmtileg hjá okkur á Humarhöfninni. Þá komu skemmtilegir gestir í heimsókn til okkar en þeir voru hér vegna upptöku myndarinnar The secret life of Walter Mitty sem Ben Stiller leikstýrir og leikur í. Ben kom 4 sinnum í mat til okkar og með honum góðir gestir svo sem Sean Penn, Patton Oswalt og svo fjölskylda Bens. En eins og margir vita er Ben grœnmetisœta, borðaði að vísu líka lax og silung en ekki humar svo úr varð að grœnmetismeistari Íslands hún Solla á Gló var fengin til að elda fyrir kappann og fylgdi hún honum hingað og fékk aðstöðu hjá okkur á Humarhöfninni til að útbúa allan mat sem ofan í hann fór alla daga.
Þetta var œðislegt fyrir okkur, Solla stórskemmtileg og klikkað aldrei og við á góðri leið með að verða grœnmetisœtur.