Humarinn okkar er veiddur af Hornafjarðarbátnum Sigurði Ólafssyni og bátum útgerðarinnar Skinney - Þinganes. Við kaupum hann beint og tryggjum þannig ferskleika og gæði.
Lambakjöt fáum við frá Fjallalambi á Kópaskeri en vörurnar þeirra uppfylla kröfur okkar. “Fjallalamb er fremur lítið fyrirtæki miðað við önnur sambærileg í þessum geira atvinnulífsins. Það er yfirlýst stefna félagsins að starfa sjálfstætt og nýta sér þá sérstöðu sem félagið hefur frá náttúrunnar hendi. Vegna þessarra náttúrukosta, verkþekkingar og vegna smæðar sinnar á það möguleika á að sinna séróskum kröfuharðra neytenda, viðskiptavina sem meta gæði og góðan uppruna ofar lágu verði. Þannig hyggst félagið skapa sér sérstöðu á markaðinum.„ (Tekið af heimasíðu Fjallalambs í feb.2008).
Klausturbleikjuna fáum við að sjálfsögður frá bleikjueldinu á Klaustri og grillum hana í ofni og berum fram með nýjum kartöflum og ljúffengri rjómasítrónusósu. Einnig er reykt og grafin bleikja frá Klaustri á forrétta matseðlinum okkar.
Saltfisklundir kaupum við líka af Skinney-Þinganes útgerðinni og notum þær í að útbúa „Brandada“ sem er saltfiskplokkari með hvítlauk og kartöflum. Einnig berum við þær fram á bagettu með Mangó-chutney og salati sem er sérstaklega skemmtileg samsetning.
Kartöflur eru hvergi betri en í Hornafirði. Við fáum okkar kartöflur frá Seljavöllum og notum helst bara rauðar íslenskar og berum þær fram með öllu sem við getum Eins notum við þær til að þykkja okkar frábæru humarsúpu.
Klettur er ný afurð frá fyrirtækinu Sjónarsker í Skaftafelli í Öræfum. Um er að ræða ljúffengar þurrkaðar og reyktar kindakjötsþynnur sem við berum fram með klettasalati og ristuðum furuhnetum.
Breði er heiti á sauðaosti sem búinn er til á bænum Akurnesi í Nesjum hér skammt frá Höfn. Þetta er hvítmygluostur “Roquefort” sem við berum fram með rifsberjahlaupi, piparköku og lífrænu hrökkkexi frá Vallanesi.
Síld fáum við hjá Skinney-Þinganes, útgerðarfyrirtæki sem rekið er hér á Hornafirði. Síldin er á jólamatseðlinum okkar og er borin fram með heimatilbúnu karrýsalati og rúgbrauði.
Kryddjurtirnar sem við notum eru basilíka, rósmarín, timian, mynta, graslaukur, steinselja og kóríander. Plönturnar okkar eru forræktaðar hjá Finndísi garðyrkjubónda í Dilksnesi en prýða síðan gluggakisturnar hjá okkur í Humarhöfninn þar sem þær vaxa og dafna yfir sumarið og stutt er að sækja þær í matinn.
Annað krydd: Saltið sem við notum kemur frá Camargue héraðinu í Frakklandi og heitir „Fleur de Sel“ sem lauslega þýtt væri saltblóminn en hann kristallast á yfirborði sjávar og saltbóndinn fleytir honum varlega ofan af. Nýmalaður svartur pipar er í miklu uppáhaldi hjá okkur líka. Að auki notum við svo ekta vanillustangir í okkar ekta Créme Brulé en þær eru innfluttar frá Madagaskar.