Nýr réttur á Humarhöfninni sem á örugglega eftir að njóta mikilla vinsælda heitir Stóri kampalampi og er heil djúpsjávarrækja í skel. Rækjan er soðin og fryst á hafi úti og heldur þannig ferskleika sínum og gæðum. Við berum hana fram með brauði, Chantilly rjómasósu og fullt af sítrónu. Best er hún hrognafull og þá er gott að kreista yfir hrognin sítrónusafa og sjúga svo herlegheitin í sig ummmm…………………….. síðan bara skelfletta, dýfa í sósuna og borða dýrið með nýbökuðu brauði.